Víðir með hæsta verðið en Bónus það lægsta
Verðlagseftirlit ASÍ var með verðkönnun á matvöru í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum mánudaginn 1. september. Hæsta verðið var oftast að finna í verslun Víðis Garðatorgi og lægsta verðið var oftast að finna í verslun Bónus Nýbýlavegi. Í um helmingi tilvika var allt að fjórðungs verðmunur, en sjá mátti allt að 132% verðmun á milli verslana.
Fjöldi félagsmanna RSÍ sem eru í atvinnuleit eru 44 talsins eða 0,9% félagsmanna. Atvinnuleysi hefur dregist saman á undanförnum árum og fyrir því geta verið nokkrar ástæður. Ein þeirra er að verkefnum hefur fjölgað í rafiðngreinum hér á landi, nokkur fjöldi íslenskra rafverktakafyrirtækja hafa sótt fleiri verkefni erlendis til viðbótar við þau sem eru
Verslunin Bónus Korputorgi var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum, stórmörkuðum og klukkubúðum víðsvegar um landið þriðjudaginn 12. ágúst. Hæsta verðið var oftast að finna í verslun 10/11 Laugalæk eða í næstum helming tilvika og hjá Samkaupum-Strax í Hófgerði í þriðjungi tilvika.
Vörukarfan hefur lækkað um 3% hjá Bónus frá júní 2013
Verð á vörukörfu ASÍ hefur lækkað hjá Bónus, Nettó, og Nóatúni frá því í júní 2013. Á sama tíma hækkar vörukarfan hjá Víði, Samkaupum-Strax, Samkaupum-Úrval, Hagkaupum og Iceland en hefur nánast staðið í stað hjá Tíu-ellefu og Krónunni.