Frá og með deginum í dag, 1. júlí 2014, er launafólki aftur gert heimilt að greiða 4% í séreignarsjóð án þess að efri 2% séu skattlögð. Þetta gerir það að verkum að vilji launafólk auka frekar við sparnað sinn þá getur viðkomandi launamaður ákveðið að leggja meira til af launum sínum í séreignarsjóðinn eða 4% en hlutur atvinnurekenda er áfram að hámarki 2%. Hvetjum
Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á fiskafurðum í 27 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið mánudaginn 2. júní. Kannað var verð á 23 algengum tegundum fiskafurða. Í um helmingi tilvika var verðmunurinn á hæsta og lægsta verði á milli 50-100%. Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni.