Rafiðnaðarsamband Íslands mun halda félagsfundi næstu tvær vikurnar þar sem farið verður yfir stöðu mála í kjaraviðræðum og einnig niðurstöður viðhorfskönnunar sem hófst í lok október. Hvetjum við félagsmenn til þess að fjölmenna á fundina. Fundaráætlun er eftirfarandi en óskir um fleiri fundarstaði má
Ávinningur síðustu kjarasamninga hefur verið töluverður ef við horfum til stöðu verðbólgu liðins árs en í dag er ársverðbólga 1,8%. Það sem styður við lága verðbólgu eru sumpart vegna aðgerða Seðlabanka Íslands en í peningastefnu bankans er í dag það svigrúm sem skapast vegna styrkingar á íslensku krónunni nýtt til þess að efla gjaldeyrisvaraforða bankans og á móti hefur bankinn stutt við gengi krónunnar þegar það hefði annars veikst. Þetta kemur fram í auknum stöðugleika að minnsta kosti til skamms tíma. Jafnframt má sjá ávinning af kjarasamningum sem gerðir voru í desember 2013 og febrúar á þessu ári. Ávinningurinn skiptir heimili landsins miklu máli þegar kemur að skuldahlið þeirra.
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði hjá níu verslunum og verslunarkeðjum af 14 sem skoðaðar voru frá því í apríl 2014 (viku 14) þar til nú um miðjan september (vika 37). Mesta hækkunin á þessu tímabili er 2,9% hjá Samkaupum-Strax og 1,6% hjá Nóatúni. Vörukarfan lækkaði hins vegar mest hjá Nettó eða um 2,1%.
Það má sjá verðbreytingar í öllum vöruflokkum bæði hækkanir og lækkanir á tímabilinu, en áberandi eru miklar sveiflur á verði grænmetis og ávaxta, kjötvörum og hreinlætis- og snyrtivörum.
Laugardaginn 20. september fengu nýsveinar afhend sveinsbréf í rafvirkjun, rafveituvirkjun og rafeindavirkjun. Að þessu sinni luku 50 nýsveinar sveinsprófi en flestir luku prófi í rafvirkjun eða 33 talsins þar á eftir voru 10 sem luku prófi í rafeindavirkjun og 7 í rafveituvirkjun.
Ánægjulegt var að sjá svo fjölmennan
Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ) gagnrýnir harðlega áform stjórnvalda um hækkun virðisaukaskatts á matvælum sem mun hafa mest áhrif á þá sem minnst hafa. Hækkun á nauðsynjum líkt og mat- og drykkjarvörum, raforku, heitu vatni og bleium hefur bein áhrif á útgjöld heimilanna. Þetta eru þær vörur
Miðstjórn ASÍ lýsir yfir miklum vonbrigðum með að ríkisstjórnin velji með fjárlagafrumvarpi sínu fyrir árið 2015 að ráðast enn og aftur gegn hagsmunum launafólks í stað þess að hefja uppbyggingu velferðarkerfisins. Almennt launafólk hefur á síðustu árum tekið á sig miklar byrðar með samdrætti í tekjum, auknum útgjöldum og skuldsetningu sem leitt hafa til minni kaupmáttar. Þetta á ekki síst við um lágtekjuhópa og lífeyrisþega. Á sama tíma hefur verið skorið verulega niður í heilbrigðis-, velferðar og menntakerfinu sem leitt hefur til meiri greiðsluþátttöku, minni þjónustu og meira óöryggis. Launafólk sem færði miklar fórnir hefur réttmætar væntingar um að endurreisn og uppbygging velferðarkerfisins hafi ríkan forgang nú þegar viðsnúningur hefur orðið í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar.