Þessa dagana er í gangi launakönnun sem Capacent vinnur fyrir RSÍ. Við hvetjum þá félagsmenn sem lenda í úrtaki að taka þátt í könnuninni og svara henni eftir bestu samvisku. Rétt er að vekja athygli á því að þess er krafist að félagsmenn hafi launaseðla tiltæka svo að niðurstaðan gefi besta mynd. Jafnframt er afar mikilvægt að sem flestir svari sem í úrtakinu eru. Úrtakið er líkt og undanfarin ár 1.350 manns.