Nú stendur yfir viðhorfskönnun vegna kjarasamninga RSÍ sem flestir renna úr gildi 28. febrúar næstkomandi. Það er Rafiðnaðarsambandi Íslands og samninganefndum þess afar mikilvægt að fá viðhorf okkar félagsmanna enda móta skoðanir félagsmanna stefnu okkar í kjaraviðræðum. Tölvupóstur hefur verið sendur á stærstan hluta félagsmanna þar sem mögulegt er að komast í könnunina en jafnframt getur þú, félagi góður, smellt hér og tekið þátt.