Rafiðnaðarsamband Íslands mun halda félagsfundi næstu tvær vikurnar þar sem farið verður yfir stöðu mála í kjaraviðræðum og einnig niðurstöður viðhorfskönnunar sem hófst í lok október. Hvetjum við félagsmenn til þess að fjölmenna á fundina. Fundaráætlun er eftirfarandi en óskir um fleiri fundarstaði má senda tölvupóst á kristjan@rafis.is og munum við reyna að verða við óskum um slíkt.
Mánudagur 17 nóvember, | kl. 12:00 | Selfoss, | Hótel Selfoss |
Fimmtudagur 20 nóvember, | kl. 12:00 | Akureyri | Strikið |
Fimmtudagur 20. nóvember, | kl. 17:00 | Sauðárkrókur | Mælifell |
Mánudagur 24. nóvember, | kl. 12:00 | Neskaupsstaður | Egilsbúð |
Þriðjudagur 25. nóvember, | kl. 12:00 | Reykjavík | Grand hótel |
Miðvikudagur 26. nóvember, | kl. 12:00 | Borgarnes | Landnámssetrið |
Fimmtudagur 27. nóvember, | kl. 12:00 | Reykjanesbær | Icelandair hótel |
Boðið er upp á hádegisverð á fundunum eða kaffi og með því þegar fundir eru seinni part dags.