Fréttir frá 2014

07 2. 2014

Vörukarfa ASÍ í júli 2014

ASI verðk jun13 2014Vörukarfan hefur lækkað um 3% hjá Bónus frá júní 2013
Verð á vörukörfu ASÍ hefur lækkað hjá Bónus, Nettó, og Nóatúni frá því í júní 2013. Á sama tíma hækkar vörukarfan hjá Víði, Samkaupum-Strax, Samkaupum-Úrval, Hagkaupum og Iceland en hefur nánast staðið í stað hjá Tíu-ellefu og Krónunni.
Séu skoðaðar verðbreytingar frá því í júní, vika 24 - 2013 og nú í júní, vika 23 - 2014 má sjá að vörukarfan hækkar mest um 5% hjá Víði, um 3% hjá Samkaupum-Strax, um 2% hjá Samkaupum-Úrval, um 1% hjá Iceland og Hagkaupum en í verslunum Krónunnar og Tíu-ellefu er vörukarfan næstum á sama verði, hjá Nettó og Nóatúni lækkar vörukarfan um 1% en mesta lækkunin er 3% hjá Bónus. Á þessu tímabili hefur verðlag á mat og drykk skv. Hagstofunni hækkað um 0,2%.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.
Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslanakeðjum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland og í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni, Samkaupum-Úrval, Víði og klukkubúðunum, 10-11, og Samkaupum-Strax.
Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.
Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?