Félagsfundir
Rafiðnaðarsambands Íslands
7. nóvember kl. 12, Grand Hótel, Reykjavík
8. nóvember kl. 12, Egilsbúð, Neskaupsstað
9. nóvember kl. 12, Hótel Hérað, Egilsstöðum
15. nóvember kl. 12, Landnámssetur, Borgarnesi
15. nóvember kl. 17, Gamla kaupfélagið, Akranesi
20. nóvember kl. 12, Hótel Ísafjörður, Ísafirði
Á 40. þingi Alþýðusambands Íslands var ný miðstjórn kjörin til næstu tveggja ára. Guðmundur Gunnarsson fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambands Íslands hætti sem aðalmaður í miðstjórn, ásamt tveimur öðrum, en Guðmundur hefur setið í miðstjórn ASÍ nánast tvo áratugi og hefur staðið vaktina af hálfu Rafiðnaðarmanna þennan tíma af mikilli festu og af miklum dugnaði.
Undanfarna tvo daga var trúnaðarmannaráðstefna RSÍ haldin á Selfossi. Trúnaðarmannaráðstefnuna sækja hátt í 100 trúnaðarmenn á ári hverju en trúnaðarmennirnir starfa víðsvegar um landið hjá hinum ýmsu fyrirtækjum. Trúnaðarmenn eru kjörnir af félagsmönnum RSÍ á hverjum vinnustað fyrir sig en hafa það hlutverk að verja kjör og réttindi okkar félagsmanna sem til þeirra leita.
Í gær og í dag stóð Rafiðnaðarsamband Íslands fyrir árlegri trúnaðarmannaráðstefnu. Ráðstefnuna geta allir trúnaðarmenn RSÍ sótt enda er þetta einn mikilvægasti samráðsvettvangur rafiðnaðarmanna. Á ráðstefnunni var farið yfir efnahags- atvinnu-, lífeyris-, húsnæðis- og Evrópumál. Einnig var árleg launakönnun RSÍ kynnt en könnunin var framkvæmd í október mánuði og endurspeglar laun félagsmanna RSÍ fyrir september mánuð.
Í tilefni af geðverndarvikunni þá hefur VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður sett upp á heimasíðu sína skemmtilegan möguleika þar sem fólk getur sent rafræn póstkort til vinnufélaga, vina, fjölskyldu eða einhvers sem það telur að eigi hrós skilið – svokölluð gleðikort – þar sem komið er á framfæri hrósi og jákvæðum umsögnum. Allir geta nýtt sér þessi kort án endurgjalds og ekki bara í geðverndarvikunni heldur allt árið um kring.