Í dag á Óskar Hallgrímsson 90 ára afmæli. Óskar var fyrsti formaður Rafiðnaðarsambands Íslands en hann stóð að stofnun RSÍ á árunum fyrir 1972. Hann lagði grunn að því fyrirkomulagi sem RSÍ styðst við enn þann daginn í dag, er snýr að samstarfi aðildarfélaga RSÍ. Í tilefni afmælis Óskars buðu starfsmenn RSÍ honum til kaffis þar sem honum var færður blómvöndur og gjöf. Rafiðnaðarsamband Íslands óskar Óskari innilega til hamingju með daginn.