Á næstu vikum verða félagsfundir haldnir víðsvegar um landið. Fundarferðin hefst næstkomandi mánudag á Sauðárkróki, því næst verður fundur á Akureyri. Hér má sjá áætlaðar dagsetningar fyrir fundina:
29. október, kl. 12:00 - Sauðárkrókur, Mælifell
30. október, kl. 12:00 - Akureyri, Strikið
31. október, kl. 12:00 - Selfoss, Hótel Selfoss
1. nóvember, kl. 12:00 - Reykjanesbær, Flughótel
7. nóvember, kl. 12:00 - Reykjavík, Grand Hótel
8. nóvember, kl. 12:00 - Neskaupsstaður
8. nóvember, kl. 17:00 - Reyðarfjörður
9. nóvember, kl. 12:00 - Egilsstaðir, Hótel Hérað
Dagskrár fundanna verða laufléttar, farið verður yfir stöðu mála, hver staðan er á vinnumarkaði í tengslum við kjarasamninga og fleira.
Samhliða þessum hádegis og síðdegisfundum verða fjölmörg fyrirtæki heimsótt. Hafi félagsmenn áhuga á að fá okkur í heimsókn þá má endilega tilkynna það í tölvupósti: rsi@rafis.is og við reynum að koma til móts við óskir!