Fréttir frá 2012

10 10. 2012

Mikill verðmunur á umfelgun

asiVerðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 24 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. mánudag.

Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi) með
18´´ stálfelgum (265/60R18) sem var ódýrust á 7.000 kr. hjá Nýbarða en dýrust á 13.398 kr. hjá Sólningu, verðmunurinn var 6.398 kr. eða 91%. Fyrir álfelgu af sömu stærð er þjónustan ódýrust hjá Dekkverk og Nýbarða á 7.500 kr., en dýrust á 13.398 kr. hjá Sólningu verðmunurinn er 5.898 kr. eða 79%.


Minnstur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti undir smábíl og minni meðalbíl á 14 og 15´´ álfelgu (175/65R14 og 195/65R15), sem var ódýrust á 5.490 kr. hjá VDO - Borgardekk, en dýrust á 7.820 kr. hjá Öskju, verðmunurinn er 2.330 kr. eða 42%. Fyrir stálfelgu af sömu stærð er þjónustan ódýrust á 5.390 kr. hjá Nýbarða en dýrust á 7.820 hjá Öskju, verðmunurinn 2.430 kr. eða 45%.

Verð á þjónustu fyrir meðalbíl (t.d. Subaru Legacy) á 16´´ álfelgum (205/55R16) var ódýrust á 5.490 kr. hjá VDO - Borgardekk en dýrust á 7.980 kr. hjá Dekkjahúsinu og N1, verðmunurinn er 2.490 kr. eða 45%. Fyrir bíl með stálfelgu af sömu stærð var þjónustan ódýrust á 5.390 kr. hjá Nýbarða en dýrust á 7.820 kr. hjá Öskju verðmunurinn er 2.430 kr. eða 45%.
Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling fyrir jeppling (t.d. Toyota Rav) á 16´´ álfelgum (225/70R16) var ódýrust á 6.000 kr. hjá Dekkjasölunni og dýrust á 9.780 kr. hjá N1, verðmunurinn er 3.780 kr. eða 63%. Fyrir bíl með stálfelgu af sömu stærð var þjónustan ódýrust á 6.000 kr. hjá Dekkjasölunni en dýrust á 8.780 kr. hjá N1, verðmunurinn 2.780 kr. eða 46%.
8 hjólbarðaverkstæði með sama verð og í fyrra.

Sex hjólbarðaverkstæði hafa hækkað hjá sér verðið á þjónustu við dekkjaskipti á meðalbíl með 16´´ álfelgu (205/55R16) frá því í október 2011. Mesta hækkunin var hjá KvikkFix um 34% og næst mesta hækkunin var hjá Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur, Bílabúð Benna og Nýbarða um 11%. Verð þjónustunnar hefur lækkað hjá 6 þjónustuaðilum, mesta lækkunin var hjá Kletti um -20%, Sólningu um -13% og Gúmmívinnslustofunni SP dekk um -12%.

Sjá nánar niðurstöður í töflu. Smellið hér.

Hjólbarðaverkstæði Kaldársels, Bifreiðaverkstæði Grafarvogs, Smur, bón og dekkjaþjónustan, Nesdekk, Dekkjahöllin, Pústþjónusta BJB, Fossdekk og Hjólbarðaþjónusta Magnúsar neituðu þátttöku í verðkönnun verðlagseftirlitsins.

Kannað var verð á þjónustu við dekkjaskiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á álfelgum og stálfelgum af stærðum 14,15, 16 og 18´´ á 22 hjólbarðaverkstæðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Egilsstöðum og Selfossi. Verðin í könnuninni eru án afsláttar en bjóða verkstæðin upp á margskonar afsætti t.d. FÍB, eldri borgara og staðgreiðsluafslátt. Viðskiptavinir eru því hvattir til að spyrja um afslátt.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?