Umræðan í þjóðfélaginu um vaxtakjör og tegund lána er í hámæli þessar vikurnar. Hvort við ættum að vera með verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða eins og við höfðum fyrir hrun Myntkörfulán. Það hefur sýnt sig að myntkörfulán henta Íslendingum mjög illa vegna þeirra gríðarlegu sveiflna sem verða á gengi íslensku krónunnar. Hins vegar þá hefur umræðan um verðtryggð og óverðtryggð lán verið mikil að undanförnu og þá er almennt talað um að við þyrftum að losna við verðtrygginguna. Verkalýðshreyfingin hefur yfirleitt talað fyrir því að verðtryggingin sé nauðsynleg þó eru að sjálfsögðu ekki allir sammála um það.
Capacent hefur kannað laun og vinnutíma rafiðnaðarmanna í september undanfarin ár. Könnunin var framkvæmd í byrjun október mánaðar líkt og undanfarin ár en með þessu móti höfum við byggt upp góðan grunn til þess að fylgjast með þeim áherslu atriðum sem skipta félagsmenn okkar mestu máli. Þetta gerum er gert bæði fyrir Rafiðnaðarsambandið en félagsmenn nýta sér þessar upplýsingar í töluvert miklum mæli til þess að átta sig á því hver þróunin er á markaðnum í kringum þá.
World Skills London
World Skills keppninni lauk laugardaginn 8 okt. Þar voru keppendur frá 51 landi/landshlutum. Eins og áður hefur komið fram þá sendi FÍR keppanda á mótið en einnig voru þar keppendur í pípulögnum og hársnyrtiiðn, og gekk þeim öllum ágætlega.
Drög að nýju fjárlagafrumvarpi hafa verið til umræðu undanfarna daga. Þar hefur borið einna hæst umræða um að lækka eigi hámark frádráttarbærra iðgjalda séreignarlífeyrissparnaðar úr 4% í 2%.