rafidnadarsambandid rautt

Sumarhús til sölu í Miðdal B-gata lóð 3 En um er að ræða 46,5fm hlýlegt sumarhús með heitum potti á mjög skjólsælum stað. Endurbyggt að mestu árið 2004. Skilyrði fyrir kaupum er að kaupandi sé félagi í einu af aðildarfélögum RSÍ. Sjá nánari upplýsingar (smella hér)

 

Einnig er til sölu 3ja herbergja 35. fm. sumarhús við C- götu 13 í Miðdal. Bústaðurinn er með rafmagni og vatni, staðsettur í fallegu og hlýlegu umhverfi umvafinn gróðri. Sjá nánari upplýsingar (Smella hér)

rafidnadarsambandid rautt

 Félagsmönnum stendur nú til boða að kaupa ferðaávísun sem tryggir gistingu á góðu verði í sumar, í samstarfi við íslensk hótel og gistiheimili. 

Á  orlofsvefnum,orlof.is/rafis(smella hér) er að finna upplýsingar um tilboð á mörgum af betri hótelum og gistiheimilum landsins. 

Kauptu ferðaávísun og njóttu Íslands á sérkjörum

Við niðurgreiðum gistinuna um 20% af valinni upphæð að hámarki kr. 15.000 á hverju almanaksári. Ath að 500 kr í afslátt kosta 1 orlofspunkt. 

 

rafidnadarsambandid rautt

Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Rafiðnaðarsambands Íslands lokuð frá frá 20. júlí til og með 31. júlí. 

Skrifstofan opnar kl 8:00 þriðjudaginn 4. ágúst.

Vegna mála sem þola ekki bið er hægt að hafa samband við Sigrúnu Sigurðardóttur í síma 540-0122.

 

Styrkir verða greiddir úr fimmtudaginn 16. júlí. Styrkumsóknir sem berast eftir 12. júlí greiðast út 31. ágúst. 

rafidnadarsambandid rautt

Miðvikudaginn 1. júlí verður opnað fyrir bókanir á orlofshúsum fyrir tímabilið 28.08.2020-08.01.2021. Í gildi reglan "fyrstur kemur fyrstur fær"

rafidnadarsambandid rautt

Skrifstofa RSí verður lokuð vegna sumarleyfa frá 20.júlí til og með 31. júlí. Því þarf að skila inn umsóknum um styrki og sjúkadagpeninga í síðasta lagi föstudaginn 10. júlí. Styrkir verða greiddir út 16. júlí og sjúkradagpeningar 30. júlí. 

ASI verdlagseftirlit rautt

Úttekt verðlagseftirlits ASÍ á vaxtaþróun sýnir að húsnæðisvextir lánastofnana hafa lækkað mikið síðasta eitt og hálfa árið eða á tímabilinu 1. janúar 2019 til 7. júní 2020. Viðskiptabankarnir hafa í sumum tifellum tekið fram úr lífeyrissjóðunum og bjóða stundum upp á betri vaxtakjör en lífeyrissjóðirnir sem er öfugt við það sem áður var þegar lífeyrissjóðirnir voru með mun betri vaxtakjör en bankarnir. (sjá meira smella hér)

Golf Middalur 2020Eins og félagsmönnum er kunnugt hefur Rafiðnaðarsamband Íslands átt í löngu og góðu samstarfi við Golklúbbinn Dalbúa, sem rekur golfvöllinn í Miðdal við Laugarvatn, um þjónustu við félagsmenn Rafiðnaðarsambandsins. Undanfarin ár hefur þetta samstarf m.a.leitt til þess að þeir sem hafa gist í orlofshúsum sambandsins í Skógarnesi við Apavatn og í Miðdal hafa geta notað golfkort sem fylgja húsunum til að stunda golf á velli Dalbúa sér að kostnaðarlausu.

Nú hefur samningur um samstarf Rafiðnaðarsamband Íslands og golfklúbbsins Dalbúa verið endurnýjaður fyrir árið 2020. Á grundvelli hans mun golfklúbburinn veita félagsmönnum Rafiðnaðarsambands Íslands 50% afslátt (eða 2 fyrir 1) af vallargjöldum á velli Dalbúa gegn framvísun félagsskírteinis. Þá býður golfklúbburinn félagsmönnum Rafiðnaðarsambands Íslands einnig 50% afslátt fyrir tvo við nýskráningu sem félagar í Dalbúa.

(Ekki er veittur afsláttur af gjaldi sem golfklúbburinn þarf að greiða til GSÍ fyrir hvern félagsmann, en ef viðkomandi er aðili að öðrum golfklúbbi innan GSÍ fellur það gjald niður.)

Félagsmenn Rafiðnaðarsambands Íslands eru eindregið hvattir til að kynna sér þennan möguleika til golfiðkunar í fallegu umhverfi.

Frekari upplýsingar um golfklúbbinn er að finna á heimasíðunni dalbui.is, en félagsmenn Rafiðnaðarsambands Íslands geta m.a. notfært sér þetta tækifæri og sótt um aðild að golfklúbbi Dalbúa með einföldum hætti í gegnum heimasíðuna eða með tölvupósti á dalbui@dalbui.is

bordar 1300x400 12Á föstudag fór fram árlegur sambandsstjórnarfundur RSÍ. Á fundinum var farið yfir rekstur RSÍ og er skýrsla miðstjórnar birt í kjölfar fundarins. Skýrslan fangar helstu verkefni sem RSÍ hefur verið að sinna auk þess sem fjallað er um helstu sjóði RSÍ. Hvetjum áhugasama til að skoða skýrsluna, smellið hér.

rafidnadarsambandid2Kjaraviðræður halda áfram vegna endurnýjunar kjarasamnings verkalýðsfélaganna við Norðurál. Samningurinn rann úr gildi um síðustu áramót og hefur kjaradeilunni verið vísað til Ríkissáttasemjara eftir 16 samningafundi áður en deilunni var vísað. Í síðustu viku fór fram fyrsti fundur hjá Ríkissáttasemjara þar sem farið var yfir þann gang sem hafði verið í viðræðunum. Krafa starfsfólks er að halda inni þeirri tengingu sem viðhöfð hefur verið á fyrirkomulagi launahækkana. Síðastliðinn samningstíma hafa laun hækkað í samræmi við launavístölu Hagstofunnar. Iðnaðarmenn hafa jafnframt unnið að breytingum sem koma sérstaklega til hagsbóta fyrir félagana, sjaldan hefur verið jafn mikil þörf fyrir endurmenntun og að við fylgjumst vel með þeim tæknibreytingum sem eru í gangi, en það er í þessu eins og áður ekkert fast í hendi fyrr en blekið er komið á kjarasamning.

rafidnadarsambandid2Síðastliðinn föstudag, þann 5. júní, fór fram sambandsstjórnarfundur RSÍ þar sem Margrét Halldóra Arnarsdóttir var kjörin sem varaformaður RSÍ og tekur við af Borgþóri Hjörvarssyni. Margrét er því fyrsta konan sem sinnir embætti varaformanns hjá RSÍ frá stofnun sambandsins. RSÍ fagnar 50 ára afmæli á árinu og því svo sannarlega kominn tími til að þessum tímamótum sé náð. Óskum við bæði Margréti og RSÍ til hamingju með þennan stóra áfanga.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?