Síðastliðinn föstudag, þann 5. júní, fór fram sambandsstjórnarfundur RSÍ þar sem Margrét Halldóra Arnarsdóttir var kjörin sem varaformaður RSÍ og tekur við af Borgþóri Hjörvarssyni. Margrét er því fyrsta konan sem sinnir embætti varaformanns hjá RSÍ frá stofnun sambandsins. RSÍ fagnar 50 ára afmæli á árinu og því svo sannarlega kominn tími til að þessum tímamótum sé náð. Óskum við bæði Margréti og RSÍ til hamingju með þennan stóra áfanga.