ASI Verdlagseftirlit

Mjög mikill verðmunur er á leikföngum og spilum á milli verslana en í mörgum tilfellum hleypur hann á nokkur þúsund krónum. Í nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var 6. desember kemur fram allt að 98% verðmunur á leikföngum og allt að 100% verðmunur á spilum. 

Mesti verðmunur á leikföngum í krónum talið var 9.500 kr. (95%) verðmunur á Lego City lögreglustöð, hæst var verðið í Hagkaup, 19.499 kr. en lægst var verðið í Toys‘r us, 9.999 krónur. Mesti verðmunur á spilum var 100% verðmunur á Sequence, lægst var verðið í Nexus, 3.495 kr. en hæst í Toys‘r us, 6.999 kr. sem gerir 3.504 kr. verðmun. Toys‘r us var oftast með lægsta verðið á leikföngum en Heimkaup oftast með það hæsta. Heimkaup var einnig oftast með hæsta verðið á spilum.

Hægt er að spara háar fjárhæðir með því að gera samanburð á verslunum áður en leikföng og spil eru keypt. Flestar verslanir í könnuninni eru með netverslanir þar sem hægt er að sjá hvað vörurnar kosta. Þá geta verð breyst hratt en sumar verslanir eru með tilboð á vörum á þessum árstíma og skiptir því enn meira máli að gera samanburð milli verslana áður en haldið er af stað í jólagjafainnkaup.  leikfong

Mörg þúsund króna munur á mörgum leikföngum (sjá töflu...smella hér)
Mesti verðmunur á leikföngum í krónum talið var 9.500 kr. (95%) verðmunur á Lego City lögreglustöð eins og fyrr segir. Þar var verðið hæst í Hagkaup en l

ægst var verðið í Toys‘r us. Mesti verðmunur í prósentum var 98% verðmunur á Lego dublo hesthúsi eða 5.378 kr., lægst var verðið í Toys‘r us, 5.490 kr. en hæst hjá Heimkaupum, 10.868 kr. Þá var 6.865 kr. eða 59% verðmunur á Lego City slökkviliðsstöð, lægst var verðið í Toy‘s r us á 11.625 en hæst hjá Heimkau

Heimkaup var oftast með hæsta verðið á leikföngum í könnuninni eða í 13 skipti af 32, sem vekur athygli fyrir þær sakir að Heimkaup er netverslun og því takmarkaða yfirbyggingu. Toys‘ r us var oftast með lægsta verðið eða í 13 skipti af 32. p, 18.490 kr.
Mikill verðmunur var á litlum Hvolpasveitarböngsum, 83% eða 1.991 kr. en hæsta verðið var hjá Heimkaup, 7.390 kr. en það lægsta hjá Hagkaup, 2.399 kr. 

Heimkaup oftast með hæstu verðin á spilum (sjá töflu..smella hér)
Mesti verðmunur á spilum var 100% verðmunur á Sequence, lægst var verðið í Nexus en hæst í Toys‘r us. Mikill verðmunur var á Monopoly en hæsta verðið var í Heimkaup, 7.890 kr. en það lægsta hjá Nexus, 4.495 kr. Þá var 75% verðmunur á Cortex Challenge 2, hæsta verðið var hjá Heimkaup 3.490 kr. en það lægsta hjá Nexus, 1.995 kr. Oftast var yfir 30% verðmunur á borðspilum og oftast um 1.000 kr. – 2.000 kr. verðmunur. Heimkaup var oftast með hæsta verðið á spilum eða í 9 skiptum af 21 og aldrei með það lægsta en lægstu verðin dreifðust annars á milli verslananna. 

Um könnunina
Í könnuninni var verð á 32 leikföngum og 21 spili skráð niður. Ef afsláttur var gefinn upp af verði var hann tekinn til greina. Könnunin var framkvæmd á sama tíma í öllum verslunum en þær eru; Heimkaup, Toy‘s r us, Hagkaup, Elko, Spilavinir, Nexus og A4. 

Í könnuninni er einungis gerður samanburður á verði en ekki lagt mat á gæði eða þjónustu viðkomandi verslana. Einhverjar verslanir bjóða t.d. upp á heimsendingu með sínum vörum en ekki er tekið tillit til þess í könnuninni. Sum leikfanganna og spilanna voru einungis fáanleg á tveimur stöðum enda fáir staðir með mikið eða sama úrval af leikföngum og spilum. 

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

rafidnadarsambandid2Nú liggur fyrir frumvarp á Alþingi þar sem bregðast á við því að kjararáð hefur verið lagt niður án þess að framtíðarlaunasetning hafi verið ákvörðuð. Í ljós kemur að verði þetta frumvarp samþykkt þá á hreinlega að festa í sessi þá gríðarlegu hækkun sem meðal annars alþingismenn fengu árið 2016. 45% hækkun á launum þeirra er þá tryggð og til að bæta í skömmina þá ætlar ríkisstjórnin að tryggja sér vísitölutryggð laun og fleyta þar með rjómann af samfélaginu, launaskrið opinberra starfsmanna.

Miðstjórn RSÍ skorar á alþingismenn að hafna þessu frumvarpi og standa með þjóðinni við að reyna að koma á sátt í samfélaginu þar sem jöfnuður verði efstur á blaði.

Verði frumvarpið samþykkt liggur í augum uppi að eðlilegast væri að vísitölutengja laun almennings jafnframt með ákveðnu álagi og tryggja þar með aukinn kaupmátt launa til allrar framtíðar óháð efnahagsstöðu.

Kröfugerðir verkalýðsfélaga hljóma afar hófstilltar miðað við það upplegg sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að velja sér. Sama hver árangur verður á vinnumarkaði þá munu alþingismenn njóta mun meira vegna launaskriðs.

Lasar1 edited bannerNýverið hófu RSÍ og SART að afhenda félagsmönnum innan RSÍ persónubundna öryggislása þar sem markmiðið er að auka öryggi félagsmanna við þeirra störf. Verklag við notkun lásanna er þannig að þegar starfsmaður þarf að rjúfa spennu að búnaði eða stöðva vinnslu vélar þá gerir viðkomandi búnaðinn spennulausan og læsir síðan viðkomandi rofa eða sjálfvari, svo dæmi sé tekið, með persónulásnum sínum. Starfsmaður hefur síðan störf við búnaðinn eftir að hafa fulltryggt að viðkomandi búnaður sé spennulaus. Þegar verki er lokið og öruggt er að spennusetja aftur tekur viðkomandi starfsmaður lásinn af og spennusetur/gangsetur. Lásinn er merktur með nafni viðkomandi auk símanúmers. Komi annar notandi eða starfsmaður að búnaði og sér að búnaður er læstur þá getur viðkomandi ekki annað en læst búnaði einnig með öðrum lás (ef viðkomandi ætlar að vinna við búnaðinn) eða þá haft samband við starfsmann sem búinn er að læsa búnaði og athuga stöðu verks. 


Undir engum kringumstæðum má annar en eigandi eða yfirmaður viðkomandi starfsmanns, ef ekki næst í starfsmanninn, fjarlægja lás annars einstaklings.

Fyrir skömmu fengu starfsmenn RSÍ fregnir af því að rafvirki hafi læst búnaði á verkstað sökum þess að aðstæður voru með þeim hætti að ekki var talið öruggt að hafa spennu á búnaði. Því var búnaði læst til að tryggja öryggi notenda. En eftir að búnaði var læst og viðgerð ekki lokið var viðkomandi persónulás fjarlægður af öðrum aðila án þess að hringja í viðkomandi rafvirkja sem hafði læst búnaði til að tryggja öryggi sitt sem og annarra. 

Vinnueftirlitið var kallað til á verkstað ásamt fulltrúa Mannvirkjastofnunar til að rannsaka aðstæður. Vinnustaðaeftirlitsfulltrúar RSÍ fóru í eftirlitsferð á verkstað einnig í kjölfar þessa. Það er ljóst að RSÍ tekur uppákomum sem þessum mjög alvarlega og mun krefjast þess að gjörningur sem þessi hafi alvarlegar afleiðingar. Þarna er verið að tryggja líf og heilsu fólks með því að læsa rafbúnaði og er það gríðarlega alvarlegt þegar sá sem ekki hefur þekkingu til fjarlægir öryggisbúnað sem þennan.

 

 

Apavatn2009(2) 280x187

 

 Vekjum athygli á að Hús nr. 5 í Skógarnesi er laust helgina 7.-10. desember. 

rafidnadarsambandid rautt

Við vekjum athygli á að félagsmenn sem vilja fá styrki greidda út fyrir jól þurfa að skila inn umsóknum í síðasta lagi fimmtudaginn 13. desember 2018. Styrkir verða greiddir út 21. desember. Þeir félagsmenn sem geta ekki skilað inn umsóknum fyrir þann tíma en vilja nýta styrki þetta árið geta skilað inn umsóknum til 4. janúar 2019. Styrkirnir verða þá skráðir á árið 2018 en greiddir út 11. janúar 2019. 

Minnum félagsmenn á að nota "Mínar síður" til að sækja um styrki. Innskráning er með íslykli eða rafrænum skilríkjum. 

 

 

 

rafidnadarsambandid rautt

Rafeindavirki við stýribúnað

 
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir rafeindavirkja við stýribúnað á Þjónustumiðstöð borgarlandsins tímabundið í eitt ár með möguleika á framlengingu.
Þjónustumiðstöðin sinnir margvíslegum verkefnum í borgarlandinu, hreinsun gatna og gönguleiða, vetrarþjónustu, grasslætti, uppsetningu og viðhaldi umferðar- og gangbrautaljósa og umferðamerkja, útleigu á lokunarbúnaði og fánaborgum, umsjón og viðhaldi hitakerfa auk eftirlits með framkvæmdum veitustofnana.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Uppsetning og viðhald umferðarljósa
• Uppsetning og viðhald hraða og rauðljósamyndavéla
• Uppsetning og viðhald á hjólateljurum og hraðamælum
• Uppsetning og viðhald umferðaskynjara
• Uppsetning og viðhald á ýmsum öðrum rafmagnsbúnaði
• Stjórnun og tilsögn við vinnu á verkstað 
• Verkbókhald
• Samskipti við ýmsa hagsmunaaðila, íbúa og aðrar stofnanir Reykjavíkur

Hæfniskröfur

• Menntun í rafeindavirkjun 
• Þekking og reynsla af vinnu við rafbúnað 
• Hafa vald á íslensku, bæði skrifaðri og talaðri
• Almenn ökuréttindi skilyrði
• Vinnuvélapróf er kostur
• Ákveðni, frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
• Þekking á gatnakerfi Reykjavíkur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðkomandi stéttarfélags

Starfshlutfall
100%
Umsóknarfrestur
16.12.2018
Ráðningarform
Timabundin ráðning
Númer auglýsingar
6224
Nafn sviðs
Umhverfis- og skipulagssvið
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hinrik H Friðbertsson í tölvupósti hinrik.fridbertsson@reykjavik.is
 
Umferðarljós - Verkamenn
v/ Stórhöfða
110 Reykjavík

Rafeindavirki við stýribúnað

 
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir rafeindavirkja við stýribúnað á Þjónustumiðstöð borgarlandsins tímabundið í eitt ár með möguleika á framlengingu.
Þjónustumiðstöðin sinnir margvíslegum verkefnum í borgarlandinu, hreinsun gatna og gönguleiða, vetrarþjónustu, grasslætti, uppsetningu og viðhaldi umferðar- og gangbrautaljósa og umferðamerkja, útleigu á lokunarbúnaði og fánaborgum, umsjón og viðhaldi hitakerfa auk eftirlits með framkvæmdum veitustofnana.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Uppsetning og viðhald umferðarljósa
• Uppsetning og viðhald hraða og rauðljósamyndavéla
• Uppsetning og viðhald á hjólateljurum og hraðamælum
• Uppsetning og viðhald umferðaskynjara
• Uppsetning og viðhald á ýmsum öðrum rafmagnsbúnaði
• Stjórnun og tilsögn við vinnu á verkstað 
• Verkbókhald
• Samskipti við ýmsa hagsmunaaðila, íbúa og aðrar stofnanir Reykjavíkur

Hæfniskröfur

• Menntun í rafeindavirkjun 
• Þekking og reynsla af vinnu við rafbúnað 
• Hafa vald á íslensku, bæði skrifaðri og talaðri
• Almenn ökuréttindi skilyrði
• Vinnuvélapróf er kostur
• Ákveðni, frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
• Þekking á gatnakerfi Reykjavíkur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðkomandi stéttarfélags

Starfshlutfall
100%
Umsóknarfrestur
16.12.2018
Ráðningarform
Timabundin ráðning
Númer auglýsingar
6224
Nafn sviðs
Umhverfis- og skipulagssvið
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hinrik H Friðbertsson í tölvupósti hinrik.fridbertsson@reykjavik.is
Umferðarljós - Verkamenn
v/ Stórhöfða
110 Reykjavík

Banner Jolaball

Jólaball Rafiðnaðarsambands Íslands verður haldið sunnudaginn 16. desember kl 15:00-17:00 að Gullhömrum.

Dansað kringum jólatré, veitingar og jólasveinar gefa börnum jólapakka.

Miðar til sölu frá og með mánudeginum 3. desember til kl: 16:00 miðvikudaginn 12. desember. 

Miðar eru seldir á www.rafis.is - Verð kr 1200 fyrir fullorðna og kr 500 fyrir börn.

asi rautt
Starf forsætisráðherra 6-7 sinnum mikilvægara en umönnunarstarf
Kjararáð var lagt niður og nú er ljóst hverju er ætlað að taka við. Svo við reynum að byrja á jákvæðu nótunum þá verða ákvarðanir gagnsærri og bundnar ákveðnum tímapunkti en ekki nánast handahófskenndar eins og ákvarðanir kjararáðs voru gjarnan. Það er gott. 

Þær ofurhækkanir sem kjararáð hefur úrskurðað um síðustu ár munu hins vegar halda sér og festast í lög. Það er frekar holur hljómur í því þegar kjörnir fulltrúar gagnrýndu ofurhækkanir kjararáðs fyrir sjálfa sig en ætla nú að lögfesta þessar sömu hækkanir í staðinn fyrir að vinda ofan af þeim nú þegar valdið er komið í þeirra hendur.

Ef frumvarpið verður samþykkt er forseti Íslands með 10-11 föld lágmarkslaun ríkisstarfsmanna. Forsætisráðherra og aðrir ráðherrar eru með 6-7 föld lágmarkslaun ríkisstarfsmanna en þingmenn eru með ferföld lágmarkslaun. Ef laun eiga að kristalla ábyrgð og mikilvægi starfa gegnir forsetinn því 10-11 sinnum mikilvægara og ábyrgðameira starfi en starfsfólk í ræstingum og umönnun. Er það sanngjarnt?

Samkvæmt frumvarpinu á fjármálaráðherra að taka ákvarðanir um laun kjörinna fulltrúa, sáttasemjara, seðlabankastjóra, saksóknara og dómara út frá hækkunum á reglulegum launum starfsmanna ríkisins undangengið ár. Þarna erum við aftur lent í meðaltalsgildrunni án þess að taka afstöðu til launasetningar almennt og æðstu embættismenn tryggja að allt launaskrið hjá hinu opinbera skili sér örugglega til þeirra. Tækifærið til að taka launaákvarðanir út frá jöfnuði er látið ónotað og það á að skauta fram hjá umræðunni um launasetningu almennt. Þessu til viðbótar hafa lægstu tekjurnar tekið á sig aukna skattbyrði frá 1990.

Ákvarðanir um hæstu laun hafa verið tekin af manneskjum af holdi og blóði og manneskjur geta ákveðið hvað er sanngjarnt og eðlilegt. Laun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna verða aldrei slitin úr samhengi við laun annarra og á meðan ríkið sem launagreiðandi semur um laun sem ekki er hægt að framfleyta sér á er ótrúlegt að verið sé að lögfesta margföld laun.

Alþýðusambandið hefur sagt að það sé lágmark að vinda ofan af launum kjörinna fulltrúa og/eða frysta þau til ársloka 2021. Nú er heimilt að taka ákvarðanir um enn eina hækkunina strax í júlí á næsta ári. Við viljum ganga lengra og nýta þetta tækifæri til að ákvarða hvaða launasetning er sanngjörn og réttlát miðað við lægstu laun. Er starf forsætisráðherra í alvöru 6-7 sinnum mikilvægara en umönnunarstarf?

Drífa Snædal forseti ASÍ
Vilhjálmur Birgisson 1. varaforseti ASÍ
Kristján Þórður Snæbjarnarson 2. varaforseti ASÍ

Banner Launakonnun

Hægt er að nálgas könnunina undir "ÚTGÁFA / LAUNAKANNANIR" 

rafidnadarsambandid

Kjaraviðræður iðnaðarmannafélaganna og SA hafnarIMG 02
Fulltrúar iðnaðarmannafélaganna, VM, RSÍ, MATVÍS, GRAFÍU, Samiðn og Félags hársnyrtisveina, hafa í dag fundað með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins. Kröfur iðnaðarmannafélaganna voru lagðar fram vegna yfirstandandi viðræðna um endurnýjun kjarasamninga sem renna úr gildi þann 31. desember næstkomandi.
Iðnaðarmannafélögin leggja upp í viðræður með skýr markmið að leiðarljósi. Tryggja verður áframhaldandi kaupmáttaraukningu launa, breyta verður taxtakerfi iðnaðarmanna og hækka taxta upp að raunverulegum markaðslaunum.   Setja þarf nánari skilgreiningar í kjarasamningana til þess að tryggja að starfsfólk í iðngreinum njóti hærri launa til samræmis við aukna menntun og starfsreynslu. Tryggja skal að réttindaávinnsla fylgi starfsmönnum en ekki fyrirtækjum, svo sem ávinnsla orlofs, veikindaréttar o.s.frv.
Iðnaðarmenn vilja stytta vinnutímann með áþreifanlegum hætti án skerðingar á launum. Ljóst er að vinnutími iðnaðarmanna er lengri en almennt gerist. Yfirvinnugreiðslur tíðkast í meiri mæli hjá stéttinni en öðrum starfsstéttum og telja iðnaðarmenn tíma kominn til að gera störfin fjölskylduvænni með bættum launakjörum og styttri vinnutíma.
Iðnaðarmenn settu jafnframt fram kröfu um að viðræðunum yrði komið í fastar skorður svo dráttur verði ekki á því að samningar náist. Nýir samningar eiga að gilda frá lokum þess síðasta.
Mikil áhersla er jafnframt lögð á að útrýma félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði. Tryggja þarf að erlendir starfsmenn njóti sömu réttinda og sömu kjara og íslenskir starfsmenn.
Jafnframt var rætt um nauðsyn þess að stjórnvöld grípi til vissra aðgerða til að bæta hag launafólks. Breyta þarf tekjuskattskerfinu á þann veg að jöfnuður aukist í samfélaginu. Það er algjörlega óásættanlegt að ríkasti hluti samfélagsins greiði minni skatta en áður var á sama tíma og skattbyrði hefur aukist hjá millitekju- og lágtekjuhópunum. Þessu þarf að breyta.
Iðnaðarmannafélögin gera kröfu um það að húsnæðisstefna verði innleidd sem tryggi öllum öruggt húsnæði. Gerð er krafa um að lögleiða skyldur sveitarfélaga til að bjóða upp á nægilegt magn af félagslegu húsnæði og að óhagnaðardrifnum leigufélögum verði tryggðar íbúðalóðir án verulegs kostnaðar. Tryggja þarf öllu launafólki aðgengi að húsnæði á hagstæðum kjörum.
Ákveðið var að formlegar viðræður hefjist strax í næstu viku

Talsmaður iðnaðarmanna í viðræðunum er Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður RSÍ  sími 8563466

 

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?