Jólaballið verður haldið í Gullhömrum, Þjóðhildarstíg 2, sunnudaginn 15. desember kl.14:00 - 16:00.
Veitingar, Hljómsveit hússins og Jólasveinar að sjálfsögðu.
Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir alla.
Greitt við inngang.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið: jolaball@rafis.is eða í síma 580-5201 til 12. desember á milli kl. 9:00 - 16:00.
Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands ákvað á fundi sínum í október að hækka ekki gjaldskrár sínar í orlofshúsum RSÍ. Vikuleiguverð helst því óbreytt á milli ára líkt og gert var á árinu 2013. Er þessi ákvörðun okkar byggð á því að við viljum draga úr verðbólgu í landinu og teljum við þetta innlegg okkar í þá átt að draga úr
Sumarið 2013 héldu ASÍ, SA og RSK áfram samstarfi sínu undir heitinu "Leggur þú þitt af mörkum?". Í verkefnavali var að þessu sinni lögð sérstök áhersla á ferðaþjónustu og aðila tengdum henni, en einnig var sjónum beint að bygginga- og verktakastarfsemi sem og starfsstöðvum sem valdar voru af handahófi.
Útspil Samtaka atvinnulífsins í formi auglýsingar þar sem fram kemur að launahækkanir einar og sér valdi allri verðbólgu hér í landi er hreint út sagt ótrúlegt! Að halda því fram að gengi krónunnar hafi fallið sökum launahækkana í efnahagshruninu árið 2008 - 2009 en þá féll krónan um 50% og ársverðbólga náði hæsta gildi þessarar aldar
Helstu niðurstöður launakönnunar eru þær að meðaltalheildarlaun rafiðnaðarmanna í september 2013 voru 557.676 kr á mánuði en þau hækkuðu um 7,8% á milli ára. Þetta eru þau laun sem greidd eru fyrir alla vinnu og því er nokkur yfirvinna innifalin í þessari upphæð, að meðaltali unnu rafiðnaðarmenn 24 klst í yfirvinnu. Ef litið er til meðaltals dagvinnulauna þá eru
Sífellt oftar fáum við fréttir af því að rafiðnaðarmenn vanti í Noregi. Nú auglýsir Strá, ráðningarstofa, eftir rafiðnaðarmönnum til starfa hjá norskum fyrirtækjum til starfa í Osló og nágrenni. Nánari upplýsingar er að finna hjá Strá í síma 588-3031 og á heimasíðunni www.stra.is eða með því að smella hér.
RSÍ hvetur þá félagsmenn sem fara til vinnu í Noregi að
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í flestum verslunarkeðjum frá því í janúar 2013 (viku 5) þar til nú í byrjun nóvember (viku 44), nema hjá Hagkaupum og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga þar sem hún lækkar í verði á milli mælinga. Mesta hækkunin var hins vegar 6,4% hjá Iceland. Verðbólgan á sama tíma var 3,8%. Á tímabilinu má sjá miklar hækkanir á mjólkurvörum, kjötvörum og sætindum. Grænmeti og ávextir lækkuðu hins vegar í verði hjá 10 verslunum af 15.