Fréttir frá 2013

11 11. 2013

Vörukarfan hefur lækkað hjá Hagkaupum og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga

asi storVörukarfa ASÍ hefur hækkað í flestum verslunarkeðjum frá því í janúar 2013 (viku 5) þar til nú í byrjun nóvember (viku 44), nema hjá Hagkaupum og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga þar sem hún lækkar í verði á milli mælinga. Mesta hækkunin var hins vegar 6,4% hjá Iceland. Verðbólgan á sama tíma var 3,8%. Á tímabilinu má sjá miklar hækkanir á mjólkurvörum, kjötvörum og sætindum. Grænmeti og ávextir lækkuðu hins vegar í verði hjá 10 verslunum af 15.


Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði eins og fyrr segir mest hjá Iceland um 6,4%, 5% hjá Víði, 4,2% hjá Bónus, 4% hjá Nettó, 3,7% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og 3,4% hjá Samkaupum-Úrvali. Hjá tveimur verslunum lækkaði karfan á tímabilinu eða um 2,8% hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga og um 1,2% hjá Hagkaupum. Hjá Kaskó stóð verðið nánast í stað.

viewer

 

Breytingar í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum
Mjólkurvörur, ostar og egg hafa hækkað hjá öllum verslunum, en mesta hækkunin er hjá Iceland (9,3%) og Krónunni (7,9%). Kjötvörur ásamt sætindum hafa hækkað mikið í verði hjá flestum verslunum. Grænmeti og ávextir er eini vöruflokkurinn sem hefur lækkað hjá meira en helmingi verslana en mesta lækkunin er hjá Kaskó (16,6%) og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga (13,6%) en mesta hækkunin er hjá Víði (9,2%) og Iceland (8,2%). Benda má á að heildsöluverð á mjólkur og mjólkurafurðum hækkaði þann 1.10.13. og sykurskattur var settur á 1.3.13.

viewer2

 

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðal heimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.


Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum staðsettum á landsbyggðinni Kjarval, Kaskó, Kaupfélagi Skagfirðinga, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.
Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?