Fréttir frá 2013

11 29. 2013

"Leggur þú þitt af mörkum?" - sumarið 2013

Leggurdu thitt ad morkumSumarið 2013 héldu ASÍ, SA og RSK áfram samstarfi sínu undir heitinu "Leggur þú þitt af mörkum?". Í verkefnavali var að þessu sinni lögð sérstök áhersla á ferðaþjónustu og aðila tengdum henni, en einnig var sjónum beint að bygginga- og verktakastarfsemi sem og starfsstöðvum sem valdar voru af handahófi. Farið var á helstu ferðamannastaði í samstarfi við lögreglu viðkomandi svæða, þar með talið Gullfoss og Geysir, Bláa lónið, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Skarfabakka í Reykjavík þar sem flest skemmtiferðaskip koma til landsins.

Af þeim 748 fyrirtækjum sem heimsótt voru, eru 416 fyrirtæki eða 55.6 % með stöðuna „Lokið án athugasemda“ og er þá átt við að fyrirtæki standi skil á staðgreiðslu og virðisaukaskatti og tekjuskráning sé formlega í lagi. Þessar niðurstöður sýna að 44,4% þeirra fyrirtækja sem skoðuð voru eru með einhverjar athugsemdir og sum hver með fleiri en eina.

Skýrslu um verkfnið og niðrstöður þess má nálgast hér.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?