Trúnaðarráðstefna RSÍ verður haldin á Selfossi dagana 22. og 23. nóvember. Af þeim sökum verður þjónusta á kjarasviði takmörkuð frá hádegi fimmtudaginn 22. nóvember og föstudaginn 23. nóvember. Skrifstofan verður opin báða dagana. Hægt er að hafa samband við skrifstofu og biðja um skilaboð til starfsmanna kjarasviðs eða senda tölvupóst sé þörf á aðstoð eða ráðleggingum. Netföng er hægt að nálgast á heimasíðu RSÍ http://rafis.is/um-rsi/starfsfolk