Fréttir frá 2020

11 30. 2020

Desemberuppbót 2020

 rafidnadarsambandid rautt

Desemberuppbót skal greiða í desember, í síðasta lagi 15. desember. En algengast er að uppbótin sé greidd út samhliða greiðslu launa fyrir nóvembermánuð.

Full uppbót greiðist fyrir fullt ársstarf sem teljast 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Upphæðin miðast við starfshlutfall og starfstíma og eiga þeir starfsmenn sem hafa starfað í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í vinnu fyrstu vikuna í desember rétt á uppbótinni miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Dæmi:
Starfsmaður vinnur fullt starf og hefur unnið í 45 vikur eða meira á starfsárinu fær greiddar kr. 94.000

Starfsmaður sem hefur unnið í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum fær greiddar kr. 25.067 (12/45*94.000= kr. 25.067).

ATH að upphæðir í sérkjarasamningum geta verið þær sömu eða hærri og því nauðsynlegt að kynna sér efni sérkjarasamninga þegar það á við.  

 

Desemberuppbót 2020

Desemberuppbót 2020 á almenna markaðnum....... kr. 94.000

 

Orlofsuppbót 2020

Orlofsuppbót 2020 á almenna markaðnum....... kr. 51.000

 

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?