Í kvöld var skrifað undir kjarasamning RSÍ, FIT, VR VLFA og StéttVest við Norðurál. Kjarasamningurinn mun fara í kynningu á meðal félagsmanna RSÍ, sem og annarra verkalýðsfélaga sem standa að kjarasamningnum, hjá Norðuráli á næstu dögum. Það er gríðarlega mikilvægt að ná kjarasamningi við fyrirtækið enda höfðu viðræður staðið yfir í rúma 10 mánuði.