Fréttir frá 2020

08 13. 2020

Takmörkun heimsókna á skrifstofu RSÍ vegna Covid-19

COVID 1 1475x394

Rafiðnaðarsambandið beinir því til félagsmanna að nota vefsíðu félagsins, Orlofshúsavefinn og „Mínar síður“ eins og hægt er á meðan COVID-19 ástand er og reglur gilda um fjarlægðir fólks á milli. Á þessum síðum má finna upplýsingar um starfsemi félagsins, áunnin réttindi, styrki, orlofsmál og fleira.

Þá mælist félagið til þess, eins og önnur félög á Stórhöfða 31, að fólk sendi heldur tölvupóst eða hringi, frekar en að mæta á skrifstofuna eigi það erindi við félagið, sé þess kostur.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?