Opnað hefur verið á bókanir á tjaldsvæðin á Skógarnesi og í Miðdal. Nú er nauðsynlegt að bóka ákveðin tjaldstæði áður en komið er á staðinn. Farið er inn á orlof.is/rafis þar sem félagar skrá sig inn og bóka tjaldstæði líkt og um orlofshús sé að ræða.
Til að velja sér tjaldsvæði á orlofshúsavefnum:
Hægt er að sjá svæðisskipulagið með því að fara inn á Öll ORLOFSHÚSIN og leita með leitarstikunni að „tjaldstæði“ og þá opnast möguleikar til að skoða nánar, þar undir er svæðisskipulagið.
Til að velja tjaldstæði þarf að fara inn á LAUS TÍMABIL og velja þar í felliglugganum undir flokkur, tjaldsvæðið í Miðdal eða á Skógarnesi. Þegar valið hefur verið svæði þá opnast nokkrir möguleikar á tjaldstæðum (númeruð) Þarna er hægt að fara beint í það að velja dagana eða að ýta á stæðið sjálft og þá opnast ný síða þar sem einnig er hægt að sjá svæðisskipulagið.