Miðstjórn RSÍ sendir öllum þeim sem standa í framlínustörfum baráttukveðjur, ykkar þáttur í að halda samfélaginu gangandi skiptir sköpum fyrir samfélagið. Á þessum tímum skiptir jafnframt gríðarlega miklu máli að kjarasamningar séu í gildi hjá öllum landsmönnum. Við skorum á stjórnvöld og aðra þá launagreiðendur sem ekki hafa gengið frá kjarasamningum við sína starfsmenn að gera það tafarlaust.
Miðstjórn RSÍ hefur sérstakar áhyggjur af stöðu heilbrigðisstarfsfólks sem sinnir grundvallarþjónustu á þessum tímum, líkt og áður. Fleiri hópar, líkt og lögreglumenn, búa við óþarfa óvissu á þessum tímum og afar brýnt að draga úr þeirri óvissu. Tökum höndum saman, stöndum vörð um réttindi landsmanna, skrifið undir kjarasamninga! Við komumst saman í gegnum þessar tímabundnu áskoranir með samstöðunni, “hlýðum Víði” og okkar frábæra þríeyki í einu og öllu.