Nú liggja fyrir niðurstöður úr atkvæðagreiðslum félaga okkar sem starfa hjá ISAL um verkfallsaðgerðir til að knýja á um endurnýjun kjarasamnings, þar sem samningsdrög liggja á borðinu en Rio Tinto hyggst ekki skrifa undir.
Félagar okkar hjá ISAL eru í tveimur aðildarfélögum og féllu atkvæði þannig:
Félag íslenskra rafvirkja:
Á kjörskrá voru: | 15 | |
Alls greiddu atkvæði: | 13 | eða 86,7% |
Já sögðu | 12 | eða 92,3% |
Félag rafeindavirkja:
Á kjörskrá voru: | 9 | |
Alls greiddu atkvæði: | 9 | eða 100% |
Já sögðu | 8 | eða 88,9% |
Verkfallsaðgerðir voru því samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta.