Á málþinginu verður fjallað um velferð, jöfnuð og réttlæti í tengslum við loftslagbreytingar og þær aðgerðir sem þarf til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Málþingið er liður í fundaröð ASÍ um umhverfis- og loftslagsmál.
Tímasetning: 4. mars, 08:30-10:30 (morgunverður frá kl. 08:00)
Staðsetning: Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52. Salur 4-5
Dagskrá
08:30 Inngangsorð - Henný Hinz, aðalhagfræðingur ASÍ
08:40 Opinber fjármál og loftslagsbreytingar - Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra
08:55 Viðbrögð við loftslagsbreytingum og velsæld - Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ
09:15 Grænir skattar - Daði Már Kristófersson, prófessor í auðlindahagfræði við HÍ
09:40 Pallborð
Þátttakendur: Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræðum, Guðni Elísson, prófessor í bókmenntafræði, Henný Hinz, aðalhagfræðingur ASÍ.
Einnig verða stutt innslög sem varpa frekara ljósi á málefnið en þar mun Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra og Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor í jarðvísindum við HÍ svara nokkrum spurningum.
Fundinum verður streymt á vefsíðu ASÍ og Facebook