Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands lýsir yfir stuðningi við verkfallsaðgerðir Eflingar- stéttarfélags. Aðgerðirnar tengjast kjaradeilu félagsins vegna endurnýjunar kjarasamnings starfsfólks hjá Reykjavíkurborg, sem rann út 31. mars 2019.
Miðstjórn RSÍ hvetur félagsmenn aðildarfélaga sinna og annað launafólk til að virða aðgerðir Eflingar og stuðla að því að verkfallsbrot verði ekki framin.