Stjórnarkjör
Skv 34. grein félagsins skal tveim mánuðum fyrir aðalfund ár hvert auglý sa frest til framboðs í trúnaðarstöður samkvæmt 23. og 24. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnandi, auk þess fjórir menn til vara. Einnig skal kjósa þrjá menn í trúnaðarráð og þrjá til vara, tvo endurskoðendur og einn til vara og tvo menn í kjörstjórn.
Til að bera fram lista eða tillögu til stjórnarkjörs, trúnaðarráðs eða annarra trúnaðarstarfa, þarf skriflega staðfestingu þeirra sem á listanum eru. Komi aðeins fram einn listi eða tillaga um menn í trúnaðarstöður,þarf kosning ekki að fara fram.
Umsóknarfrestur er til 21. febrúar 2020
Umsóknum skal skila til skrifstofu félagsins Stórhöfða 31
merkt: Stjórnarkjör FÍS
Stjórn Félags íslenskra Símamanna