Í gær var skrifað undir kjarasamning við HS Veitur og var samningurinn kynntur fyrir félagsmönnum seinnipartinn í dag. Síðan var skrifað undir kjarasamning við RARIK í dag en unnið er að því að gera kynningarefni og verður samningurinn kynntur fyrir félagsmönnum á föstudagsmorgun og hefst þá atkvæðagreiðsla uppúr því.