Í vikunni hélt RSÍ árlega trúnaðarmaannaráðstefnu þar sem farið var yfir ýmis mikilvæg málefni er snúa að starfi trúnaðarmanna og stöðuna á vinnumarkaði. Farið var yfir stöðu í efnahagslífinu og hagspá ASÍ komandi mánaða og ára. RSÍ er bakhjarl UN Women á Íslandi og var málefni UN Women til umræðu á ráðstefnunni. Send var áskorun frá ráðstefnunni vegna þessa en mjög mikil umræða varð um það hvað við getum gert og hvað þarf að gera til þess að vinna að jafnrétti í samfélaginu. Við þekkjum hvernig umræðan um jafnrétti eða almennt um þá stöðu þegar hallar á aðila/einstaklinga að þá sé það viðkomandi sem þurfi eingöngu að vinna að því að bæta sína stöðu. Það mátti heyra á trúnaðarmönnum RSÍ að sá tími eigi að vera liðinn. Lausnin að jafnrétti felist ekki í því að laga konur heldur að við sem samfélag vinnum saman að því að bæta samfélagið!
Farið var yfir niðurstöður launakönnunar RSÍ sem bárust á föstudag. Könnunin er mjög umfangsmikil og verður gerð opinber í vikunni á heimasíðu RSÍ. Þó nokkur umræða var um stöðu kjaraviðræðna en þegar ráðstefnan stóð yfir áttum við eftir að ganga frá 16 kjarasamningum, 9 samningar hafa verið undirritaðir frá því í maí síðastliðnum. Stytting vinnutímans var mikið í umræðunni auk þess að farið var yfir eftirfylgni á þeim þáttum sem ríkisstjórnin lagði til málanna við gerð kjarasamninganna.
Það er gaman að segja frá því að í kjölfar ráðstefnnunnar héldum við beint á fund með Landsvirkjun þar sem skrifað var undir kjarasamning við fyrirtækið vegna félagsmanna RSÍ, VM og Samiðnar. Samningurinn verður kynntur starfsmönnum á mánudagsmorgun og hefst atkvæðagreiðsla í kjölfarið.
Þrátt fyrir þétta dagskrá vikunnar þá voru haldnir samningafundir vegna Landsnets, RARIK og Landsvirkjunar. Undirbúningsfundur var haldinn vegna kjarasamnings stéttarfélaganna við Norðurál.
KÞS