Löng hefð er fyrir því hjá Byggiðn og FIT að spila bridge annan hvern fimmtudag yfir vetrartímann og er nú félögum í Rafiðnaðarsambandinu og MATVÍS boðið að taka þátt.
Spilað verður í matsal á Stórhöfða 31 (gengið inn Grafaravogsmegin) og hefst spilamennskan stundvíslega kl. 19:30.
Fimmtudaginn 26. september er upphitun fyrir spilamenskuna og eru félagar Rafiðnaðarsambandsins og MATVÍS boðnir sérstaklega velkomnir.
Mótaröð til jóla:
26.sept. Upphitun
10.okt. FIT-bikarinn tvímenningur
24.okt. FIT-bikarinn tvímenningur
07.nóv. Hraðsveitakeppni
21.nóv. Hraðsveitakeppni
05.des. Hraðsveitakeppni
18.des. Jólamót (miðvikudagur)