Fréttir frá 2019

09 13. 2019

Málþing um menntamál 25. sept. kl. 9:00 – 12:00

Fjorda idnbyltinginFjórða iðnbyltingin er hafin – hún hófst fyrir nokkrum árum og hefur óhjákvæmilegar samfélagslegar breytingar í för með sér. Hún hefur áhrif á okkar daglega líf og birtist okkur á ýmsan hátt með aukinni sjálfvirkni og tækninýjungum. En hún hefur ekki síður í störfum okkar. Til að koma á móts við þær öru breytingar sem verða, þarf að gera öllum kleift að sinna ólíkum störfum.


Þann 25. september heldur menntanefnd ASÍ málþing á Hótel Natura um fjórðu iðnbyltinguna og hvað við þurfum að gera til að undirbúa okkur. 

Dagsetning: 25. september 9:00 - 12:00
Skráningasi@asi.is
Staðsetning: Hótel Natura, Salur 3
Fundarstjóri: Eyrún Valsdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar ASÍ

Málþinginu verður streymt á vef ASÍ

Dagskrá
09:00-–09:15  Setning – Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður menntanefndar.
09:10–09:15   Kynning/kennsla á Slido – fundarstjóri fer yfir forritið – og einni spurningu varpað til þátttakenda. 
09:15–09:45   Byltingar og breytingar í námi og kennslu  Tryggvi Thayer, Ph.D, framtíðafræðingur og kennsluþróunarstjóri Menntavísindasviðs HÍ.     
09:45–10:15   Hvernig lítur framtíðin út?  Ragnheiður Hrefna Magnúsdóttir, forstöðumaður hjá Veitum. 
10:15–10:45   KAFFI 
10:45–11:15   Hvað getum við gert?  Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ.   
11:15–11:55   Pallborð – stjórnandi Snorri Már Skúlason 
                       Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður menntanefndar ASÍ 
                       Sveinn Aðalsteinsson, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
                       Guðjónína Sæmundsdóttir, Kvasir
                       Lísbet Einarsdóttir, Starfsafl
                       Helga Ingólfsdóttir Framtíðarnefnd VR.
11:55–12:00   Samantekt  - fundarstjóri
       
Skráning á asi@asi.is                          Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar 

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?