Á undanförnum árum og áratugum hafa alþingismenn og ráðherrar svo gott sem keppst um að tala sem fallegast um eflingu iðnnáms. Núverandi ráðherra er þar á meðal og hefur hún staðið að því meðal annars að reyna að auka aðsókn í kennslufræði fyrir iðnmeistara (sem sagt búa til fleiri kennara til að kenna greinarnar okkar) sem er vel. Á síðasta ári sáum við verulega aukningu á aðsókn í iðnnám í framhaldsskólunum sem var verulega ánægjulegt. Sumir skólanna ef ekki flestir þurftu reyndar að vísa nemendum frá vegna fjölda takmarkana.
Nú heyrast af því fréttir, bæði á síðustu vorönn og nú haustönn, að enn fleiri nemendum hafi verið vísað frá sökum þess að fjármunir sem ríkið leggur til skólanna hafi klárast og í raun sú fjölgun sem varð síðasta haust hafi orðið til þess að skólarnir hafi mögulega notað fjármagn komandi anna til að taka á móti nemendum það árið.
Þetta þýðir að sú aukna aðsókn sem kom dregur í raun úr fjölda nemenda á næstu önnum. Þetta getur ekki verið markmið ráðherra til eflingar á iðngreinum. Við þurfum á fleiri iðnmenntuðum einstaklingum út á vinnumarkaðinn og við þurfum að tryggja nemendum nám við hæfi, aðgang að námi sem skilar sér í auknum tekjum úti á vinnumarkaði, meira atvinnuöryggi en ekki síður auknum tækifærum í áframhaldandi menntun í framtíðinni. Það er bráðnauðsynlegt að stjórnvöld rýni betur í stöðuna og bregðist við með auknum fjármunum og geri skólunum kleyft að taka við fleiri nemendum í iðngreinarnar. Núverandi fyrirkomulag er ekki til þess fallið að stuðla aukinni aðsókn líkt og kallað er eftir. Látum raunverulegar aðgerðir fylgja í kjölfar ræðanna.
Kristján Þórður
Formaður RSÍ