Nýverið kom upp deila á milli RSÍ, VM, FIT, Hlíf og VR um kjör aðaltrúnaðarmanns hjá ISAL þar sem fyrirtækið ætlaði sér ekki að greiða aðaltrúnaðarmanni ISAL rétt laun samkvæmt kjarasamningi.
Miðvikudaginn 21. nóvember sl., kvað Félagsdómur upp dóm sinn í máli nr. 6/2018, þar sem félögin gerðu kröfu um rétta niðurröðun í launaflokk. Það er skemmst frá því að segja að lögfræðingur RSÍ vann málið fyrir hönd aðaltrúnaðarmanns og ber ISAL því að greiða honum laun samkvæmt kjarasamningi. ISAL ber jafnframt að greiða málskostnað vegna málsins.