Á nýafstöðnu þingi ASÍ var okkar maður, Kristján Þórður Snæbjarnarson kjörinn 2. varaforseti ASÍ. Við erum ánægð með okkar mann, en hann fékk engin mótframboð og því sjálfkjörinn. Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins var kjörin nýr forseti ASÍ með 65.8% greiddra atkvæða en Sverrir Mar Albertsson framkvæmdastjóri Afls starfsgreinafélags var einnig í framboði. Drífa er fyrsta konan til að gegna embættinu í 102 ára sögu sambandsins. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness var kjörinn 1. varaforseti með 59.8% greidda atkvæða en Guðbrandur Einarsson formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja og formaður Landssambands Íslenzkra verslunarmanna var einnig í framboði.