Félagsmenn hafa tekið vel í ný hús á Flórída en nú þegar er búið að leigja ríflega 30% af því tímabili sem búið er að opna inn á. En ljóst er að félagsmenn geta náð ansi góðum leigutímabilum ef þeir eru snöggir til að skipuleggja gott frí í hitanum á Flórída. Hér má sjá myndband sem tekið var í orlofshúsi skömmu áður en frágangi lauk af byggingaraðila. Eins og sjá má á myndbandinu átti eftir að ganga frá ýmsum atriðum innandyra en það má gera sér grein fyrir því hvernig hús er um að ræða. Smellið hér og njótið ;-)