Starfslýsing:
Í starfinu felst meðal annars að leiða og halda utan um eftirmenntunarnámskeið á sviði veikstraums og stýra innleiðingu nýrra námskeiða auk þróunar núverandi námskeiða. Viðkomandi starfsmaður starfar jafnframt með öðrum starfsmönnum Rafiðnaðarskólans að framgangi eftirmenntunar fyrir félagsmenn RSÍ og SART.
Sviðsstjóri veikstraums er talsmaður þess sviðs í nánu samstarfi við skólastjóra. Gert er ráð fyrir að viðkomandi starfsmaður sinni einhverri kennslu.
Starfskröfur:
• Víðtæk þekking og reynsla á sviði veikstraums
• Frumkvæði, drifkraftur og metnaður
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Nánari upplýsingar veitir Stefán Sveinsson, skólastjóri, stefan@raf.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2017.
Öllum umsóknum verður svarað og 100% trúnaðar gætt.