Nú fer hver að verða síðastur til að taka þátt í launakönnun RSÍ. Allir félagsmenn sem eru með skráð e-mail hjá okkur fengu póst sendan frá Gallup í upphafi októbermánaðar og hvetjum við ykkur til að nýta tækifærið og taka þátt. Þeir sem ekki eru með skráð e-mail eða með óvirkt e-mail skráð hjá okkur fengu síðan bréf sent í bréfpósti. Könnun verður lokað um miðja næstu viku og því ekki seinna vænna en að drífa í þessu. Nokkrir heppnir þátttakendur fá glaðning sem getur verið helgarleiga í orlofshúsi eða jafnvel gjafabréf sem nýtist upp í greiðslu á flugi erlendis.
Við þökkum ykkur kærlega fyrir að taka þátt og veita okkur mikilvægar upplýsingar sem bæði nýtast öllum félagsmönnum sem og okkur við greiningu á stöðu rafiðnaðarmanna og mótun kröfugerðar á hverjum tíma. #Rafidnadur #Samstada