Í dag afhentu fulltrúar Rafiðnaðarsambands Íslands og SART nýnemum í rafiðngreinum í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti spjaldtölvur. Spjaldtölvurnar munu nemendurnir nota við námið en samtök rafiðnaðarmanna hafa um langt skeið unnið að gerð námsefnis á rafrænu formi sem nemendur geta notað gjaldfrjálst í gegnum allt námið.
Gríðarleg ánægja var á meðal nemenda með spjaldtölvurnar og augljóst að þessi gjöf kemur sér virkilega vel fyrir þá. Það er þó ekki síður verðmætt fyrir nemendur að geta notað gjaldfrjálst efni við námið enda oft um mjög mikil útgjöld tengt kennslubókum. Áhugasamir geta fengið aðgang að vefnum inni á www.rafbok.is
Á næstu dögum og viku verður haldið áfram að dreifa spjaldtölvum til nemenda í öðrum skólum á landinu sem rafiðnnám er kennt.
Hér afhendir Kristján Þórður, formaður RSÍ, nýnema spjaldtölvu |
|
Hér afhendir Ásbjörn, framkvæmdastjóri SART, nýnema spjaldtölvu |
![]() |
Flottur hópur en á myndina vantar rúmlega 20 nemendur. |