Við minnum á Haustgolfmót RSÍ sem haldið verður á golfvellinum Geysi. Skráning er enn opin. Nánari upplýsingar er að finna hér að neðan.
Nú styttist í haustmót RSÍ sem haldið verður á golfvellinum Geysi, sunnudaginn 3. september 2017. Búið er að opna fyrir skráningu og fer hún fram hér. Félagsmenn og makar/spilafélagi eru velkomnir.
Ræst verður út á öllum teigum kl 13:00. Leikið er með "texas scramble" fyrirkomulagi, samanlögð grunnforgjöf deilt með 3.
Vegleg verðlaun verða veitt og dregið úr skorkortum á eftir eins og venjulega.
Verð kr 5.500 kr. Innifalið í verði er spil á einum flottasta golfvelli landsins og súpuhlaðborð og kaffi á eftir.
Endilega skráið ykkur með því að smella hér vegna minningarmótsins.
Kveðja, Golfnefnd RSÍ