Rafiðnaðarsambandið ákvað að leggja 250 þúsund krónur í landssöfnun sem Hjálparstarf kirkjunnar, Hrókurinn, Kalak og Grænlandsvinir standa fyrir vegna hamfaranna á Grænlandi aðfaranótt sunnudagsins 18. júní. Fjölmargir hafa lagt söfnuninni lið og hvetur RSÍ aðra til að leggja söfnuninni lið. Hægt er að hringja í 907-2003 og leggja þannig til 2.500 kr.