Orlofsvefurinn opnar fyrir bókanir á orlofshúsum og íbúðum innanlands kl 9:00 mánudaginn 3. júlí fyrir bókanir tímabilið 25. ágúst 2017 til og með 5. janúar 2018.
Minnum á að í gildi er reglan "fyrstur kemur fyrstur fær". Mikilvægt er að klára bókunina með kredit-/debetkorti eða millifærslu, ef það er ekki gert fellur bókunin sjálfkrafa úr gildi eftir 12 klst. Þeir sem kjósa að greiða með millifærslu geta lagt inn á reikning 0114-26-000474 kt: 440472-1099. Mikilvægt er að senda kvittun á netfangið gerdur@rafis.is og setja kennitölu félagsmanns með sem skýringu. Þeir sem ekki treysta sér til að ganga frá greiðslu með þessum hætti geta að sjálfsögðu haft samband við skrifstofuna til að fá aðstoð.