Rétt í þessu var kjarasamningur undirritaður hjá Ríkissáttasemjara á milli Rafiðnaðarsambands Íslands og Borgarleikhússins. Kjaraviðræður hafa staðið yfir um mjög langt skeið. Kjarasamningurinn verður kynntur fyrir félagsmönnum RSÍ í byrjun næstu viku og greidd verða atkvæði um samninginn í kjölfar kynningarinnar.