Nú þegar kjararáð hefur ákveðið að laun alþingismanna, ráðherra og forseta Íslands skuli hækka gríðarlega og langt umfram þær launahækkanir sem samið hefur verið um á íslenskum vinnumarkaði væri réttast að boðað verði til þingfundar nú þegar þar sem eitt mál væri á dagskrá, leiðrétting á ákvörðun kjararáðs. Ákvörðun Alþingis mætti vera í formi tillögu til kjararáðs um að þessi lína sé óásættanleg og að kjararáð verði að falla frá þessari stefnu og leiðrétta ákvörðunina til samræmis við það sem gengur og gerist í samfélaginu.
Sú stéttarskipting sem kjararáð er að móta með úrskurðum sínum er til þess fallin að auka sundrungu í samfélaginu og hefur nýtt höfrungahlaup í launasetningu. Það er rétt að halda því jafnframt til haga að laun alþingismanna hafa hækkað allverulega umfram launa flestra hópa í samfélaginu en almennt hefur ekki verið tekið tillit til þeirra lífeyrisréttinda sem alþingismenn og sérstaklega ráðherrar njóta að þingstörfum loknum. Þau réttindi eru mikið meiri en almennt þekkist í samfélaginu.
Íslenskir alþingismenn væru, standi þessi úrskurður, með launahærri alþingismönnum í þeim löndum sem við berum okkur oft við en það getur varla talist ásættanlegt að laun þeirra verði stefnumarkandi fyrir þjóðir í kringum okkur.
Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands