Fréttir frá 2016

09 23. 2016

Allir nemar í rafiðngreinum fá gefins spjaldtölvur

rafidnadarsambandid

Allir nemar í rafiðngreinum á landinu, samtals um 800 manns, fá gefins spjaldtölvur í haust frá Samtökum rafverktaka (SART) og Rafiðnaðarsambandi Íslands (RSÍ) fyrir hönd allra atvinnurekenda og launþega í rafiðnaði. Tilgangur gjafarinnar er að tryggja að nemarnir geti nýtt sér það mikla úrval af kennsluefni sem er þegar í boði á rafrænu formi og stuðla að betri námsárangri og fjölgun nemenda í þessum greinum en mikil vöntun er á rafiðnaðarmönnum á Íslandi.

„Það er von okkar að með þessum stuðningi sækist nemum í rafiðngreinum námið betur, námsárangur verði betri og nemendum fjölgi en talið er að það vanti um tvö hundruð nýja starfsmenn með rafiðnaðarmenntun á vinnumarkaðinn á ári hverju til að viðhalda þörf markaðarins,“ segir Rúnar Bachmann, formaður stjórnar Menntasjóðs rafiðnaðarins.

Gefa 800 spjaldtölvur núna
Alls eru þetta 800 spjaldtölvur sem gefnar eru í haust og voru þær fyrstu, um hundrað talsins, afhentar nemendum í Tækniskólanum í Reykjavík í dag. Næstu daga munu svo fulltrúar SART og RSÍ heimsækja alla verkmennta- og fjölbrautaskóla landsins sem kenna rafiðnir og afhenda nemendum í rafiðngreinum spjaldtölvurnar. Nemarnir geta þá skráð sig á námsgagnavefinn www.rafbok.is og fengið aðgang að því mikla úrvali af kennsluefni sem er í boði fyrir grunndeildir rafiðna og þurfa þeir þá ekki að kaupa þær námsbækur.

Að ári ætla SART og RSÍ að halda áfram á sömu braut og fá þá allir sem hefja nám í rafiðngreinum afhenta spjaldtölvu að gjöf.

Rafræn námsgögn fjármögnuð af Menntasjóði rafiðnaðarins
Samtök atvinnurekenda og launþega í rafiðnaði hafa lengi haft náið samstarf um menntun rafiðnaðarmanna, bæði grunnmenntun og endur- og símenntun. Sú starfsemi er fjármögnuð af Menntasjóði rafiðnaðarins sem hefur tekjur af kjarasamningabundnu menntagjaldi en helstu framkvæmdaaðilar eru Rafiðnaðarskólinn og Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins.

Fyrir nokkrum árum hóf Menntasjóður rafiðnaðarins að fjármagna gerð námsgagna á rafrænu formi fyrir nemendur grunndeilda rafiðna, þeim að kostnaðarlausu, og er nú til mikið af kennsluefni á rafrænu formi á vefnum www.rafbok.is. Nýlega ákváðu samtökin að gera enn betur og gefa öllum nemum spjaldtölvu sem eru í grunndeildum rafiðna, í iðnnámi í dagdeildum eða kvöldskóla, sem og dreifinámsnemum, til að tryggja að allir hafi aðgang að því mikla úrval af kennsluefni sem er í boði.

Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Bachmann, formaður stjórnar Menntasjóðs rafiðnaðarins, sími 898 3565, rb@verkis.is

Fyrsta afhending verður í Tækniskólanum föstudaginn 23 september 2016

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?