Fréttir frá 2016

09 2. 2016

Hvar eru vörugjaldslækkanir af byggingavörum?

asi rautt

Um áramótin 2014/2015 voru vörugjöld á byggingarvörum afnumin. Verðlagseftirlit ASÍ áætlaði að verð þeirra byggingavara sem áður báru 15% vörugjöld hefðu í kjölfarið átt að lækka um 14%. Á sama tíma lækkaði einnig almennur virðisaukaskattur úr 25,5% í 24% og ef sú lækkun er tekin með í reikninginn hefði heildarlækkunin átt að nema um 15,2% á þeim vörum sem báru vörugjöld. Um er að ræða margskonar byggingavörur, m.a. gipsplötur, gólfefni, vaska og salernisskálar. Vísbendingar um verðþróun þessara vara má sjá í undirvísitölunni efni til viðhalds í vísitölu neysluverðs sem hefur frá því í ágúst 2014 hækkað um 1,5%. Samkvæmt því hefur afnám vörugjalda af byggingarvörum ekki skilað sér út í verðlag og neytendur eiga því inni skattalækkunina hjá söluaðilum.

Þegar rýnt er í vísitöluna fyrir efni til viðhalds sl. 2 ár sést að verð lækkar örlítið á fyrri hluta árs 2015 eða um 0,8% en sú lækkun nemur ekki einu sinni lækkun virðisaukaskattsins.

Frá því í ágúst 2014 þegar breytingarnar voru tilkynntar þar til nú í ágúst 2016 hefur efni til viðhalds hækkað um 1,5%. Á sama tíma hefur gengi krónunnar styrkst um 14% sem einnig hefði átt að leiða til lækkunar á þessum vörulið. Engar vísbendingar eru því í þessum tölum um að afnám vörugjalda, lækkun á virðisaukaskatti og styrking krónunnar hafi skilað sér í lægri verði á byggingavörum til neytenda.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?