Fréttir frá 2016

03 1. 2016

Miðstjórn ASÍ ályktar um kjaradeiluna í Straumsvík

asi

Alþýðusamband Íslands ítrekar kröfu sína frá 18.11 2015, þess efnis að Samtök atvinnulífsins beiti sér fyrir því að gengið verði hið fyrsta frá kjarasamningi á milli Rio Tinto Alcan á Íslandi (ISAL), sem SA fer með samningsumboð fyrir,og hlutaðeigandi verkalýðsfélaga. 

Í gildi er löglegt ótímabundið verkfall (útflutningsbann á áli úr Straumsvíkurhöfn) sem fyrirtækið leitar allra leiða til þess að skjóta sér undan. Alþýðusamband Íslands fyrir hönd allra aðildarsamtaka sinna lýsir yfir fullum stuðningi við verkfallsaðgerðir félagsmanna Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði. 
Jafnframt skorar ASÍ á Samtök atvinnulífsins að sjá til þess að aðildarfyrirtæki þess virði lög- og venjubundnar samskiptareglur á íslenskum vinnumarkaði. 

ASÍ hvetur félagsmenn allra aðildarsamtaka sinna og allt launafólks á Íslandi til að virða aðgerðir félagsmanna Hlífar og stuðla að því að verkfallsbrot verði ekki framin.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?