Fréttir frá 2022

02 12. 2022

Ályktun miðstjórnar RSÍ vegna hækkun stýrivaxta

rafidnadarsambandid2Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands harmar þá ákvörðun Seðlabanka Íslands að grípa til óhóflegrar hækkunar á stýrivöxtum bankans. Hærri vextir munu hafa verulega neikvæð áhrif á kjör launafólks. Ljóst er að há verðbólga er fyrst og fremst tilkomin vegna tveggja meginþátta. Mikil hækkun fasteignaverðs hér á landi vegur þungt í verðbólgumælingum auk þess sem tímabundin hækkun olíu og hrávöruverðs. Útlit er fyrir að næstu mánuði muni innflutt verðbólga verða enn meiri þar sem möguleg áhrif verðhækkana eru ekki komin fram. 

Það verður að verja heimilin fyrir þessum áföllum. Fyrstu kaupendur hafa þurft að kaupa fasteignir háu verði, skuldsetning er því mjög mikil. Þessi hópur er sérstaklega viðkvæmur fyrir sveiflum á vaxtakjörum og tryggja þarf að hann lendi ekki í greiðsluerfiðleikum við þessar aðstæður. Þar þurfa markaðsaðilar, bankar og lífeyrissjóðir, að stíga inn og tryggja að vaxtahækkun Seðlabanka Íslands lendi ekki á lántökum af fullum krafti. 

Fréttir undanfarna daga af gríðarlegum hagnaði bankanna sýnir og sannar að það er borð fyrir báru hjá þeim til þess að draga úr okri gagnvart viðskiptavinum. Það sama má segja um lífeyrissjóðina, ávöxtun á árinu 2021 var góð þriðja árið í röð, samkvæmt Landssamtökum lífeyrissjóða. Á sama tíma hafa lífeyrissjóðir jafnframt hækkað vaxtaálög á sjóðsfélaga sína til að vega upp á móti lágum stýrivöxtum. Nú hljóta þeir sjóðir sem þetta hafa gert að stíga til baka með þær óeðlilegu hækkanir enda um einu öruggustu fjárfestingu að ræða fyrir lífeyrissjóðina.

Miðstjórn RSÍ skorar á lífeyrissjóðina okkar sem og bankana að hækka ekki vaxtakjör á fasteignalánum sjóðsfélaga og viðskiptavina sinna.

Miðstjórn RSÍ skorar á Ríkisstjórn Íslands að bregðast við stöðunni af festu og sanngirni. Styðja þarf við fasteignaeigendur t.d. með upptöku vaxtabóta. Verja þarf leigjendur og tryggja aukinn húsaleigustuðning og öryggi með langtímaleigusamningum. Taka þarf á skortstöðu á fasteignamarkaði. Setja þarf upp raunverulegar girðingar til að tryggja að fagfjárfestar kaupi ekki upp þær fáu íbúðir sem byggðar hafa verið á undanförnum árum án þess að koma þeim í leigu á markaði.

Miðstjórn RSÍ hvetur Seðlabanka Íslands til þess að leita raunverulegra leiða til að stemma stigu við hækkun verðbólgu. Gömlu kreddurnar og hótanir um hækkun stýrivaxta án þess að taka á vandamálum mun ekki duga til í dag frekar en á síðustu tveimur áratugum. Hærra vaxtastig eykur rekstrarkostnað heimila og fyrirtækja og eykur þar með þörf til að auka tekjur.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?