Fréttir frá 2015

05 22. 2015

Upplýsingar um verkfallskosningu

Ágæti félagsmaður

Rafræn atkvæðagreiðsla stendur nú yfir um boðun verkfalls í kjölfar þess að viðræðum við Samtök atvinnulífsins um endurnýjun á kjarasamningi sem rann út þann 28. febrúar s.l. var slitið. Atkvæðagreiðslan er leynileg og tekur til þeirra félagsmanna aðildarfélaga RSÍ (Félag íslenskra rafvirkja, Félag rafeindavirkja, Félag tæknifólks í rafiðnaði, Rafiðnaðarfélag Suðurnesja, Rafiðnaðarfélag Norðurlands and Félag rafiðnaðarmanna á Suðurlandi) sem taka laun samkvæmt kjarasamningi RSÍ f.h. aðildarfélaga og Samtaka atvinnulífsins.

Sú spurning er lögð fyrir félagsmenn hvort þeir vilji að boðað verði allsherjarverkfall sem standi frá miðnætti aðfaranótt 10. júní til miðnættis að kvöldi 16. júní 2015 og til ótímabundins allsherjarverkfalls frá miðnætti aðfaranótt 24. ágúst 2015. Verkfall mun eingöngu koma til framkvæmda ef þörf krefur og ef kjarasamningar hafa ekki verið undirritaðir.

Félög iðnaðarmanna hafa gengið sameinuð til viðræðna við Samtök atvinnulífsins á þessu ári. Helstu kröfur okkar eru:

  • Almenn hækkun launa 20%
  • Byrjunarlaun iðnaðarmanns með sveinspróf verði kr. 381.326 á mánuði
  • Bil á milli taxta verði 3%
  • Fara yfir hlutföll milli hópa í launatöflu og tengja launaflokka við hæfniþrep
  • Orlofs og desemberuppbætur hækki. Verði hálf mánaðarlaun viðkomandi
  • Aðfangadagur og gamlársdagur verði frídagar launafólks hjá þeim sem ekki hafa það nú þegar
  • Nýir kjarasamningar gildi frá 1. mars 2015

Þetta eru sanngjarnar kröfur og í samræmi við raunverulega stöðu mála í atvinnulífinu og samfélaginu. Þrátt fyrir það ber mikið í milli í viðræðum okkar við Samtök atvinnulífsins. Það er einróma niðurstaða viðræðunefndar iðnaðarmannafélaganna að tilgangslaust sé að halda viðræðum áfram. Til að koma hreyfingu á málin og fylgja kröfum okkar eftir sé nauðsynlegt að afla heimildar félagsmanna til að boða verkfall.

Við hvetjum félagsmenn eindregið til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og sýna hug sinn í verki. Góð þátttaka og góð samstaða sendir mikilvæg skilaboð að samningaborðinu. Við viljum að íslenskur vinnumarkaður verði samkeppnishæfur við Norðurlöndin og að fólk geti lifað mannsæmandi fjölskyldulífi af dagvinnulaunum. Með því að nýta samtakamáttinn getum við náð markmiðum okkar og fengið sanngjarnar kjarabætur.

Tökum öll þátt í atkvæðagreiðslunni!

Félagsmenn sem starfa á umræddum kjarasamningi hafa fengið sent bréf í pósti með aðgangskóða sem þeir geta notað til að greiða atkvæði. Hægt er að greiða atkvæði hér.

Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 10 mánudaginn 1. júní nk.

Úrslit verða birt á heimasíðu félagsins.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?