Fyrirhuguðum kynningarfundum vegna launakönnunar sem áttu að vera í hádeginu í dag á Selfossi og Reykjanesbæ er frestað sökum óveðurs. Jafnframt er fundum sem áttu að vera á morgun, þriðjudag, á Akureyri og á Sauðárkróki, frestað sökum sömu ástæðu. Nýjir fundartímar verða auglýstir síðar í vikunni en gera má ráð fyrir að þeir verði í byrjun næstu viku.
Með von um að þessi frestun valdi engum óþægindum en samkvæmt ráðleggingum Lögreglu og Veðurstofu er fólk hvatt til þess að vera ekki á ferðinni að óþörfu í dag.